Carbfix

Starfsemi okkar

Verkefni okkar eru á mörgum sviðum, allt frá jarðhitageiranum til stóriðju. Við stefnum að því að auka notkun á tækninni okkar og draga þannig úr loftslagsbreytingum þvert á ýmsa losunargeira.

OffersImage

Hvernig virkar Carbfix?

Markmið okkar er að vera lykilaðferð í baráttunni við loftslagsbreytingar og draga verulega úr losun CO₂ á heimsvísu.

StatIcon
1
CO₂ leyst upp í vatni

CO₂ er leyst upp í vatni og myndar kolsýrt vatn.

StatIcon
2
Niðurdæling á kolsýrðu vatni

Kolsýrða vatninu er dælt niður í hvarfgjörn berglög eins og basalt.

StatIcon
3
Steinrenningarferlið

Kolsýrða vatnið hvarfast við bergið og kemur af stað steinrenningarferli þar sem stöðugar karbónatsteindir myndast.

StatIcon
4
Varanleg kolefnisbinding

Karbónatsteindirnar eru stöðugar á jarðfræðilegum tímaskala og teljast því varanlega bundnar.

Tæknilegt forskot Carbfix

News Image
Hröð steinrenning koldíoxíðs

Carbfix tæknin okkar steinrennir CO₂ hratt og býður upp á skjóta og skilvirka lausn fyrir kolefnisbindingu á innan við 2 árum.

News Image
Sérhannaðar lausnir

Carbfix býður upp á sérsniðnar lausnir fyrir kolefnisföngun fyrir sement-, járn-, stál-, efna- og orkuiðnað, sem draga úr loftslagsáhrifum þeirra.

News Image
Örugg og varanleg kolefnisbinding

Ferlið okkar tryggir örugga og varanlega kolefnisbindingu með því að breyta CO₂ í stöðugar karbónatsteindir og draga þannig úr losun gróðurhúsalofttegunda.

Carbfix Atlas

Rannsóknir

Carbfix byrjaði sem fræðilegt rannsóknarverkefni og rannsóknir og þróun eru ennþá drifkraftur fyrirtækisins.

Skoða rannsóknarverkefni

Sæberg

Koldíoxíðsgeymsla á nýjum stað, sem eflir Carbfix tæknina með því að nota sjó til niðurdælingar á CO₂.

OffersImage

Samstarfsaðilar í rannsóknum

Carbfix er í samstarfi við fjölmarga háskóla og rannsóknastofnanir til að þróa Carbfix tæknina enn frekar og efla skilning okkar á steinrenningu koldíoxíðs.

OffersImage

Vísindagreinar

Yfirlit yfir vísindagreinar, sem Carbfix teymið og samstarfsaðilar um allan heim hafa gefið út, m.a. greinar í vísindaritum, sem og doktors-, MS- og BS-ritgerðir.

OffersImage

Vottuð aðferð

Aðferð og starfsemi Carbfix er vottuð af DNV og Puro.earth. Hér getur þú kafað ofan í aðferðafræðina á bakvið Carbfix.

OffersImage

Algengar spurningar

Hafa samband

Contact Us Image
Almennt

Heimsóknir, vísindalegar fyrirspurnir og almennar spurningar

Contact Us Image
Viðskipti

Skoðaðu lausnirnar okkar og hvernig við getum unnið saman

Contact Us Image
Fjölmiðlar

Hafðu samband með fyrirspurnir tengdar fjölmiðlum

Contact Us Image
Störf

Hefur þú áhuga á að vinna hjá Carbfix? Skoðaðu störf í boði hér