

Tæplega 200 milljóna styrkur í loftslagsaðgerðir
Verkefnið felur í sér greiningu á útblæstri frá iðnaðarstarfsemi á Grundartanga og mat á möguleikum til föngunar og varanlegrar geymslu koldíoxíðs í jörðu. Unnið verður að mælingum og líkanagerð losunar, auk rannsókna á jarðlögum til að meta megi hentugleika jarðlaganna til geymslu koldíoxíðs. Með verkefninu er Ísland að styðja við að samkeppnishæfni stóriðju á Íslandi aukist með því að minnka þörf á losunarheimildum innan losunarkerfis ESB (ETS kerfið).
Samstarf ríkis, fyrirtækja og sveitarfélaga styður við árangur
Unnið er að því að þróa Grundartanga sem grænan iðngarð með það að markmiði að bæta orkunýtingu, minnka losun og skapa ný tækifæri til verðmætasköpunar. Fyrirtæki Orkuveitunnar vinna í nánu samstarfi við Elkem, Þróunarfélag Grundartanga og stjórnvöld og snúa verkefnin meðal annars að uppbyggingu varmavirkjunar úr glatvarma frá iðnaði og þróun lausna til föngunar og bindingar kolefnis. Markmiðið er kolefnislaus stóriðja á Íslandi og sterkir grænir iðngarðar sem auka samkeppnishæfi Íslands alþjóðlega.
Heimsóknir, vísindalegar fyrirspurnir og almennar spurningar
Skoðaðu lausnirnar okkar og hvernig við getum unnið saman
Hafðu samband með fyrirspurnir tengdar fjölmiðlum
Hefur þú áhuga á að vinna hjá Carbfix? Skoðaðu störf í boði hér