Carbfix
News Media Header
16 Oct 2026
Carbfix hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar
Carbfix hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogar FKA fyrir að hafa náð markmiðum verkefnisins um jafna kynjaskiptingu í efsta lagi stjórnunar. Einnig hlutu Orkuveitan, Veitur og Ljósleiðarinn viðurkenningu fyrir sama árangur.

Markmið verkefnisins er að ná 40/60 kynjahlutfalli í efsta lagi stjórnunar. Hjá Carbfix eru kynjahlutföll meðal stjórnenda jöfn og í stjórn fyrirtækisins eru konur 60% stjórnarmanna, þessar tölur eru sérstaklega ánægjulegar í ljósi þess að kynjajafnvægi í efstu lögum stjórnunar er enn áskorun í íslensku atvinnulífi. Samkvæmt mælingum Jafnvægisvogarinnar eru aðeins um 21% framkvæmdastjóra á Íslandi konur og framfarir hafa verið hægar undanfarin ár.

Það er mikilvægt að halda áherslu á jafnrétti og jöfn tækifæri. Það á að veita málinu stöðuga athygli og taka ákvarðanir sem styðja við markmiðið um jafna kynjaskiptingu. Viðurkenning Jafnvægisvogarinnar er því bæði mikilvæg staðfesting á þeirri vinnu sem þegar hefur verið unnin og hvatning til að halda áfram á sömu braut.

 

Á sama tíma og Carbfix vinnur að lausnum sem styðja við loftslagsmarkmið og sjálfbæra framtíð leggjum við ríka áherslu á að byggja upp vinnustað þar sem fólk nýtur jafnra tækifæra, óháð kyni eða bakgrunni. Það fellur vel að stefnu Orkuveitunnar um að efla nýsköpun, samkeppnishæfni og öflugt starfsumhverfi sem laðar að og heldur í hæft fólk.

 

Við þökkum fyrir viðurkenninguna og munum áfram vinna markvisst að því að skapa vinnustað þar sem fjölbreyttar raddir fá að heyrast.

 

Hafa samband

Contact Us Image
Almennt

Heimsóknir, vísindalegar fyrirspurnir og almennar spurningar

Contact Us Image
Viðskipti

Skoðaðu lausnirnar okkar og hvernig við getum unnið saman

Contact Us Image
Fjölmiðlar

Hafðu samband með fyrirspurnir tengdar fjölmiðlum

Contact Us Image
Störf

Hefur þú áhuga á að vinna hjá Carbfix? Skoðaðu störf í boði hér